Að læra um fólk á flótta – Kennsluefni frá Flóttamannastofnun SÞ

Hvers vegna flýr flóttafólk heimaland sitt? Hvers vegna endar flóttafólk fjarri heimalandi sínu þegar það leitar öryggis? Og hvað er það mikilvægasta sem þú myndir taka með þér, ef þú neyddist til að flýja heimili þitt vegna stríðs, ofbeldis eða ofsókna?

Í dag þurfa komandi kynslóðir að skilja og umfaðma heiminn með öllum sínum margbreytileika og áskorunum. Til þess að koma málefnum flóttafólks inn í skólastofuna á yfirvegaðan hátt – án aðgreiningar, hafa Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hleypt af stokkunum yfirgripsmiklu kennsluefni á íslensku um þvingaða fólksflutninga á heimsvísu.

Markmiðið er að veita skólum og kennurum á Íslandi verkfæri, leiðbeiningar og innblástur til að fræða börn og ungmenni á Íslandi um fólk sem neyðist til að flýja heimili sín. Námsefnið mun gefa þeim sterkan grunn til þess að skilja og takast á við mikilvægar spurningar sem sumar hverjar eru í brennidepli í pólitískri og opinberri umræðu og geta jafnvel átt það til að stuðla að sundrung og fordómum gagnvart innflytjendum og flóttafólki.   

Efnið býður ekki aðeins upp á lykilstaðreyndir og útskýringar á þvinguðum fólksflutningum heldur varpar það einnig ljósi á persónulegar sögur fólks, örlög þeirra og afleiðingar flóttans. Slíkt stuðlar að skilningi á þeim vanda sem steðjar að þeim hópi fólks sem neyðist til að flýja heimili sín. Þessi hópur fer því miður ört vaxandi ár frá ári en í dag eru um 110 milljónir manna á flótta um heim allan.

Íslenska efnið er öllum aðgengilegt á netinu, endurgjaldslaust. Það tekur mið af mismunandi aldurshópum og býður upp á teiknimyndir, stutt myndskeið og tillögur að umræðu í kennslustofunni, hópavinnu og verkefni, en inniheldur einnig handbók fyrir kennara ásamt kennsluáætlunum. Námsefnið hefur verið þróað af Flóttamannastofnun SÞ og hefur þegar verið þýtt á nokkur önnur tungumál. Íslenska útgáfan hefur verið þýdd og sniðin af Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Efnið má nálgast hér: Fræðsla um flóttafólk – UNHCR Ísland

Fyrir frekari upplýsingar og ábyrgð á kennsluefninu, hafið samband við:

Frá Flóttamannastofnun SÞ: Anders Aalbu, talsmaður fyrir Ísland, Danmörku, Eistland, Lettland og Noreg, aalbu@unhcr.org, sími: +46 707 57 6285

Frá Félagi SÞ á Íslandi: Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri, vala@un.is, sími: +354 552 6700

Myndskeið á íslensku

Félagið talsetti myndskeið sem notuð eru í kennslunni og má finna þau hér, á Youtube síðu okkar. Myndskeiðin eru einnig linkuð í námsefninu hjá Flóttamannastofnun.