Heimsins stærsta kennslustund (e.World’s Largest Lesson) er alþjóðlegt fræðsluverkefni sem Sameinuðu þjóðirnar (UNESCO og UNICEF) og samtökin Project Everyone standa að verkefninu. Markmiðið er að kynna heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun fyrir börnum og ungmennum um allan heim, með áherslu á að efla þekkingu þeirra á loftslagsmálum, jafnrétti, friði og réttlæti. Kennsluefni verkefnisins er hannað fyrir ýmsa aldurshópa og er þýtt á fjölmörg tungumál, þar á meðal íslensku, til að tryggja aðgengi fyrir sem flesta. Verkefnið býður upp á skapandi nálgun í kennslu, með teiknimyndum, verkefnabókum, hópverkefnum og innblásandi dæmum sem hvetja nemendur til að taka þátt í að bæta heiminn. Kennarar um allan heim eru hvattir til að nota efnið árlega, sérstaklega í upphafi skólaárs, og í mörgum löndum er það hluti af opinberri menntastefnu um alþjóðavitund og borgaravitund í skólakerfinu.
Á hverju ári koma leiðtogar heimsins saman í New York til að ræða framgang heimsmarkmiðanna og leiðir til að flýta fyrir framförum þeirra. Við trúum því að kennarar og ungt fólk skipti máli þegar kemur að heimsmarkmiðunum.
Í ár beinum við kastljósinu að virðiskeðju tískuiðnaðarins. Verkefnið miðar að því að kynna nemendum Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna á lifandi og skapandi hátt og hvetja þau til að velta fyrir sér eigin áhrifum og ábyrgð í samfélaginu. Virðiskeðja (e. supply chain) er heiti á þeirri leið sem vara fer frá hráefni og allt til þess forms sem hún hefur þegar þú kaupir hana í búð. Á þessari vegferð koma ótal einstaklingar, staðir og ferlar við sögu: bændur sem rækta bómull, verksmiðjufólk sem saumar fötin, flutningsaðilar sem koma þeim á markað og loks verslanir sem bjóða þau til kaups. Allir þessir hlekkir tengja okkur saman í eitt alþjóðlegt net, hafa bein áhrif á störf, verðlag og umhverfið – og tengjast jafnframt mörgum af Heimsmarkmiðunum. Kennslustundin í ár er sett fram í formi leiks, þar sem hver og einn þátttakandi fær að stíga inn í hlutverk sem hlekkur í keðjunni. Rétt eins og í raunveruleikanum skiptir hvert smáatriði máli: ef einn hlekkur hægir á sér eða stöðvast, finnur öll keðjan fyrir því. Þannig fá nemendur að upplifa á eigin skinni hvernig framleiðsluferli virkar, hversu viðkvæmt það er og hve mikil samvinna og ábyrgð liggur að baki hvers flíkur. Með þessari nálgun er markmiðið að opna augu ungs fólks fyrir mikilvægi sjálfbærrar neyslu og framleiðslu. Nemendur læra ekki aðeins um ferðlag þeirra fata sem þau klæðast, heldur einnig um áhrif eigin ákvarðana sem neytendur á bæði fólk og plánetuna. Verkefnið hvetur til gagnrýninnar hugsunar, samkenndar og meðvitundar um að við erum öll hluti af stærri heild.