Risaeðlan Frankie ryðst inn í sal allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og segir ráðvilltum og hræddum diplómötum og þjóðarleiðtogum að nú sé kominn tími til að mannfólkið hætti að afsaka sig og grípi til aðgerða í loftslagsmálum. Mannkynið sé að tortíma sjálfu sér. „Við vorum allavega með loftstein,“ segir risaeðlan, „hver er ykkar afsökun?“
Svona hefst myndband sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) gaf út í dag í tengslum við herferð í tilefni af G20 leiðtogafundinum og loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í byrjun nóvember. Heimsfrægt fólk var fengið til þess að tala fyrir risaeðluna en á íslensku er það enginn annar en leikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem ljáir risaeðlunni rödd sína. Á öðrum tungumálum eru það meðal annars Jack Black (enska), Eiza González (spænska), Nikolaj Coster-Waldau (danska) og Aïssa Maïga (franska) sem tala fyrir risaeðluna.
Smelltu hér til þess að lesa fréttatilkynninguna um Frankie þegar herferðin fór af stað.