
UNESCO (United Nations Educational, Scientific and Cultural Organization) er Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Á þess vegum er starfrækt alþjóðlegt samstarfsnet skóla sem kallast UNESCO-skólar. Meginmarkmið UNESCO er að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu á sviði menntunar, vísinda- og menningarmála.
UNESCO hefur starfrækt samstarfsnet skóla á alþjóðavísu frá árinu 1953 undir nafninu UNESCO Associated schools project network (ASPnet). Þeir eru nú um 10.000 talsins og starfa í 180 löndum. Skólarnir eru á leik-, grunn– og framhaldsskólastigi.
UNESCO–verkefni auka fjölbreytni í kennsluaðferðum og þekkingu nemenda á málefnum Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðunum. Verkefnin eru þverfagleg og geta því nýst í ýmsum kennslustundum. Þau passa vel inn í grunnþætti aðalnámskráa leik-, grunn- og framhaldsskóla og hafa mikið hagnýtt gildi.
Félag Sameinuðu þjóðanna fer fyrir skólanetinu á Íslandi í samstarfi við Íslensku UNESCO–nefndina. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Í dag eru 24 íslenskir skólar þátttakendur í verkefninu.
https://www.unesco.org/en/education/aspnet
https://www.unesco.org/en/education/aspnet/need-know
UNESCO – skólar á Íslandi
| Leikskólar | Grunnskólar | Framhaldsskólar |
|---|---|---|
| Akrasel | Flóaskóli | Fjölbraut í Breiðholti |
| Landakotssskóli | Fjölbraut við Ármúla | |
| Laugarnesskóli | Fjölbrautaskóli Vesturlands | |
| Patreksskóli | Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | |
| Salaskóli | Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | |
| Tálknafjarðarskóli | Kvennaskólinn í Reykjavík | |
| Grunnskóli Bolungarvíkur | Menntaskólinn á Akureyri | |
| Stóru-Vogaskóli | Menntaskólinn á Tröllaskaga | |
| Árbæjarskóli | Verzlunarskóli Íslands | |
| Háaleitisskóli á Ásbrú | Fjölbrautaskóli Suðurlands | |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | ||
| Menntaskólinn að Laugarvatni | ||
| Menntaskólinn í Reykjavík |