Model UN ráðstefna fyrir framhaldsskóla: Afganistan í brennidepli

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og nemendur úr UNESCO-skólunum MR, Kvennó, Versló og MH bjóða framhaldsskólanemum skemtilegt tækifæri til að kynnast heimi alþjóðlegrar diplómasíu – og takast á við eina af stærstu áskorunum samtímans: Öryggi kvenna og stúlkna í Afganistan. Verkefnið byggir á aðferðafræði Model UN (Hermilíkan Sameinuðu þjóðanna), þar sem nemendur setja sig í spor fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og leitast að því að auka réttlæti og tryggja frið, með það að markmiði að stuðla að fjölþjóðlegri samvinnu og sjálfbærni. Ráðstefnan er haldinn með stuðningu frá NýMennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Utanríkisráðuneytinu.

Þátttakendur fá innsýn í ákvarðanatökur á alþjóðavettvangi – og upplifa jafnframt hvernig rödd ungs fólks getur haft áhrif.

Hver getur tekið þátt?

Þátttakendur þurfa enga sérstaka reynslu og er þess einungis krafist að nemendur vilji læra meira um starfsemi Sameinuðu þjóðanna.

Viðburðurinn er opinn öllum framhaldsskólanemendum en nemendum í UNESCO-skólum er veittur forgangur. Nemendur í 10. bekk geta sótt um.

Skráðu þig til þátttöku hérna: https://foms.office.com/e/ekNb2pjfCm

Af hverju ættir þú að taka þátt?

  • Skemmtilegt tækifæri: Þú færð að prófa þig áfram í ræðuhaldi, samningaviðræðum og samvinnu.
  • Skildu heiminn betur: Þú lærir hvernig Sameinuðu þjóðirnar starfa og hvernig ákvarðanir um stærstu mál samtímans eru teknar.
  • Vertu hluti af lausninni: Þú tekur þátt í að móta hugmyndir og lausnir sem skipta raunverulegu máli.
  • Byggðu tengslanet: Þú hittir jafnaldra úr öðrum skólum, myndar ný vinatengsl og kynnist fólki með svipuð áhugamál.
  • Einstök reynsla fyrir framtíðina: Þessi þátttaka styrkir þig sem borgara og framtíðarleiðtoga – og getur líka verið dýrmæt reynsla í námi og starfi.

Nemendur úr UNESCO-skólunum MR, Kvennó, Versló og MH mynda sérstakan stýrihóp sem skipuleggur viðburðinn, en nemendum úr öðrum UNESCO-skólum um land allt er boðið að taka þátt. Verkefnið sameinar fræðslu, skapandi vinnu og valdeflingu og leggur áherslu á að gera ungt fólk að virkum þátttakendum og framtíðarleiðtogum.