Staða mannfjöldaþróunar 2025 – Kynning á skýrslu UNFPA
Í tilefni útgáfu skýrslu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna um Stöðu mannfjöldaþróunar 2025 (e. State of The World Population), efnir Félag Sameinuðu þjóðanna, í samstarfi við Endósamtökin, með stuðningi utanríkisráðuneytisins til kynningarfundar í Loftskeytastöðinni, þriðjudaginn 16. september kl. 16.30. Viðburðurinn fer fram á íslensku en pallborðsumræður á ensku. Sýning verður opnuð á viðburðinum með myndum sem prýða skýrsluna […]













