Að læra um fólk á flótta – Kennsluefni frá Flóttamannastofnun SÞ

Hvers vegna flýr flóttafólk heimaland sitt? Hvers vegna endar flóttafólk fjarri heimalandi sínu þegar það leitar öryggis? Og hvað er það mikilvægasta sem þú myndir taka með þér, ef þú neyddist til að flýja heimili þitt vegna stríðs, ofbeldis eða ofsókna?

Í dag þurfa komandi kynslóðir að skilja og umfaðma heiminn með öllum sínum margbreytileika og áskorunum. Til þess að koma málefnum flóttafólks inn í skólastofuna á yfirvegaðan hátt – án aðgreiningar, hafa Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hleypt af stokkunum yfirgripsmiklu kennsluefni á íslensku um þvingaða fólksflutninga á heimsvísu.

Markmiðið er að veita skólum og kennurum á Íslandi verkfæri, leiðbeiningar og innblástur til að fræða börn og ungmenni á Íslandi um fólk sem neyðist til að flýja heimili sín. Námsefnið mun gefa þeim sterkan grunn til þess að skilja og takast á við mikilvægar spurningar sem sumar hverjar eru í brennidepli í pólitískri og opinberri umræðu og geta jafnvel átt það til að stuðla að sundrung og fordómum gagnvart innflytjendum og flóttafólki.   

Efnið býður ekki aðeins upp á lykilstaðreyndir og útskýringar á þvinguðum fólksflutningum heldur varpar það einnig ljósi á persónulegar sögur fólks, örlög þeirra og afleiðingar flóttans. Slíkt stuðlar að skilningi á þeim vanda sem steðjar að þeim hópi fólks sem neyðist til að flýja heimili sín. Þessi hópur fer því miður ört vaxandi ár frá ári en í dag eru um 110 milljónir manna á flótta um heim allan.

Íslenska efnið er öllum aðgengilegt á netinu, endurgjaldslaust. Það tekur mið af mismunandi aldurshópum og býður upp á teiknimyndir, stutt myndskeið og tillögur að umræðu í kennslustofunni, hópavinnu og verkefni, en inniheldur einnig handbók fyrir kennara ásamt kennsluáætlunum. Námsefnið hefur verið þróað af Flóttamannastofnun SÞ og hefur þegar verið þýtt á nokkur önnur tungumál. Íslenska útgáfan hefur verið þýdd og sniðin af Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Efnið má nálgast hér: Fræðsla um flóttafólk – UNHCR Ísland

Fyrir frekari upplýsingar og ábyrgð á kennsluefninu, hafið samband við:

Frá Flóttamannastofnun SÞ: Anders Aalbu, talsmaður fyrir Ísland, Danmörku, Eistland, Lettland og Noreg, aalbu@unhcr.org, sími: +46 707 57 6285

Frá Félagi SÞ á Íslandi: Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri, vala@un.is, sími: +354 552 6700

Myndskeið á íslensku

Félagið talsetti myndskeið sem notuð eru í kennslunni og má finna þau hér, á Youtube síðu okkar. Myndskeiðin eru einnig linkuð í námsefninu hjá Flóttamannastofnun.

Réttindafræðsla akademíunnar – UNICEF

Réttindafræðsla UNICEF Akademíunnar eru opin öllum sem hafa áhuga á að fræðast um réttindi barna. Það er markmið UNICEF á Íslandi að gera fræðslu um réttindi barna skiljanlega og aðgengilega bæði börnum og fullorðnum. Öll fræðsla UNICEF Akademíunnar byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var lögfestur á Íslandi árið 2013. Eitt af ákvæðum sáttmálans er einmitt að öll verðum við að þekkja réttindi barna.

Réttindafræðsla er öflugasta leiðin að aukinni virðingu fyrir mannréttindum. Með aukinni þekkingu barna á eigin réttindum geta þau frekar staðið á eigin rétti og virða frekar réttindi annarra barna. Og með aukinni þekkingu fullorðinna á réttindum barna eru vernd þeirra, umönnun og þátttaka betur tryggð.

Réttindafræðsla akademíunnar má nálgast hér á vef UNICEF

 

Risaeðlan Frankie varar þjóðir heims við útrýmingu

Risaeðlan Frankie ryðst inn í sal allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna og segir ráðvilltum og hræddum diplómötum og þjóðarleiðtogum að nú sé kominn tími til að mannfólkið hætti að afsaka sig og grípi til aðgerða í loftslagsmálum. Mannkynið sé að tortíma sjálfu sér. „Við vorum allavega með loftstein,“ segir risaeðlan, „hver er ykkar afsökun?“

Svona hefst myndband sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) gaf út í dag í tengslum við herferð í tilefni af G20 leiðtogafundinum og loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í byrjun nóvember. Heimsfrægt fólk var fengið til þess að tala fyrir risaeðluna en á íslensku er það enginn annar en leikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem ljáir risaeðlunni rödd sína. Á öðrum tungumálum eru það meðal annars Jack Black (enska), Eiza González (spænska), Nikolaj Coster-Waldau (danska) og Aïssa Maïga (franska) sem tala fyrir risaeðluna.

Smelltu hér til þess að lesa fréttatilkynninguna um Frankie þegar herferðin fór af stað.

Hér má sjá enska útgáfu.

Ákall til fræðslu

Þema heimsins stærstu kennslustundar árið 2020 eru aðgerðir í loftslagsmálum. Börn og ungmenni hafa heldur betur vakið athygli á nauðsyn þess að grípa til aðgerða og mörg hver eru hreyfiafl til góðs í sínum samfélögum og á heimsvísu.

Call to Learning for Climate Education

Hvað er sjálfbær þróun?

Myndbandið er framleitt af Félagi Sameinuðu þjóðanna í Noregi. Sögumaður: Ævar Þór Benediktson Talsetning: Stúdíó Sýrland fyrir Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Heimsmarkmið Elízu

Heimildarþættir þar sem Elíza,15 ára íslensk stelpa, ferðast til Úganda og hittir þar jafnöldrur sínar og kynnist á ferðlaginu sínu Heimsmarkmiðinum og mikilvægi þeirra.

Elíza Gígja Ómarsdóttir var valin úr stórum hópi ungmenna til að ferðast til Úganda og hitta jafnöldrur sínar og kynnast heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þremur þáttum fylgjum við Elízu Gígju og fáum að upplifa ólíka heima Íslands og Úganda, landsins sem kallað hefur verið perla Afríku. Framleiðandi: Hvíta húsið.

Þáttur 2

Þáttur 3