Sérstofnanir

Fimmtán sjálfstæðar stofnanir tengjast Sameinuðu þjóðunum með samstarfssamningum. Þessar stofnanir ráða sér sjálfar en þeim var komið á fót með samkomulagi stjórnvalda í mörgum ríkjum. Þær bera víðtæka alþjóðlega ábyrgð í efnahags-, félags-, menningar-, mennta- og heilbrigðismálum og á fleiri skyldum sviðum.

Sumar þessara stofnana eru eldri en Sameinuðu þjóðirnar sjálfar, til dæmis Alþjóðavinnumálastofnunin og Alþjóðapóstsambandið.

Fjölmargar skrifstofur, áætlanir og sjóðir starfa á vegum samtakanna, þar á meðal Mannréttindastofnun SÞ, Þróunaráætlun SÞ og Barnahjálp SÞ, sem vinna að því að bæta efnahagslegar og félagslegar aðstæður fólks víðsvegar um heim. Þessar stofnanir skila skýrslu til allsherjarþingsins eða efnahags- og félagsmálaráðsins.

Umfjöllun um sumar þessara stofnana má finna hér til hliðar. Flestar þeirra stofnana, sjóða og samtaka Sameinuðu þjóðanna sem má lesa um hér til hliðar falla undir allsherjarþingið.

Alþjóðavinnumálastofnunin, ILO

Alþjóðavinnumálastofnunin mótar stefnu og gerir áætlanir um aðgerðir til þess fallnar að bæta vinnuaðstæður fólks og fjölga atvinnutækifærum og setur reglur um vinnumarkaðinn sem stuðst er við um heim allan.

Matvæla- og landbúnaðarstofnunin, FAO

Stærstu hlutverk stofnunarinnar eru að auka framleiðni í landbúnaði, tryggja matvælaöryggi og sjá til þess að öll hafi aðgang að nægri fæðu til þess að lifa heilbrigðu lífi.

Menningarmálastofnun Sameinuðu Þjóðanna, UNESCO

Menningarmálastofnun SÞ stuðlar að menntun fyrir öll, menningarlegri þróun, verndun náttúru- og menningarminja heimsins, alþjóðlegu samstarfi í vísindum, tjáningarfrelsi og samskiptum

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO

Heldur utan um allar áætlanir sem hafa það að markmiði að leysa heilsufarsvandamál í heiminum og samræmir störf allra þeirra sem koma að þeim málum á æðsta stigi heilbrigðisþjónustu.

Meðal þeirra mála sem eru á borði stofnunarinnar eru bólusetningar, menntun heilbrigðisstarfsfólks og öflun lífsnauðsynlegra lyfja.

Alþjóðabankinn, World Bank Group

Alþjóðabankinn veitir lán og tæknilega aðstoð til þróunarríkja með það að markmiði að draga úr fátækt og efla sjálfbæran hagvöxt.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stendur fyrir alþjóðlegu samstarfi í peningamálum, stuðlar að efnahagslegum stöðugleika og skapar fastan vettvang til samræðna, ráðlegginga og liðveislu í fjárhagslegum efnum.

Alþjóðaflugmálastofnunin, ICAO

Alþjóðaflugmálastofnunin setur alþjóðlega staðla um öryggi og greiðar samgöngur í lofti og heldur utan um alþjóðlegt samstarf á öllum sviðum borgaralegs flugs.

Alþjóðapóstsambandið, UPU

Alþjóðapóstsambandið staðfestir alþjóðlegar reglugerðir um póstþjónustu, veitir tæknilega aðstoð og stuðlar að samstarfi um flestallt er lýtur að póstþjónustu.

Alþjóðafjarskiptasambandið, ITU

Alþjóðafjarskiptasambandið hefur umsjón með alþjóðasamstarfi varðandi umbætur í öllum tegundum fjarskipta, samræmir tíðninotkun í útvarps- og sjónvarpssendingum, styður aðgerðir sem auka öryggi og stundar rannsóknir.

Alþjóðaveðurfræðistofnunin, WMO

Alþjóðaveðurfræðistofnunin styður alþjóðlegar rannsóknir á lofthjúpi jarðar og loftslagsbreytingum og greiðir fyrir því að þjóðir heims geti skipst á veðurfræðilegum gögnum.

Alþjóðasiglingamálastofnunin, IMO

Alþjóðasiglingamálastofnunin vinnur að því að bæta verklagsreglur í alþjóðlegum siglingum, auka öryggi til sjós með strangari reglum og draga úr mengun af völdum skipa.

Alþjóðahugverkastofnunin, WIPO

Alþjóðahugverkastofnunin styður alþjóðlega hugverkavernd og heldur utan um samstarf varðandi höfundarétt, vörumerki, iðnhönnun og einkaleyfi.

Alþjóðaþróunarsjóður landbúnaðarins, IFAD

Sjóðurinn virkjar fjármagn til þess að auka matvælaframleiðslu og næringargildi matvæla í þróunarríkjum.

Iðnþróunarstofnun Sameinuðu Þjóðanna, UNIDO

Stofnunin ýtir undir framfarir í iðnaði í þróunarríkjum með því að veita tæknilega aðstoð, ráðgjafarþjónustu og þjálfun.

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin er óháð milliríkjastofnun sem starfar undir vernd Sameinuðu þjóðanna. Markmið hennar er að stuðla að öruggri og friðsamlegri nýtingu kjarnorku.

Alþjóðlega fólksflutningastofnunin, IOM

Stofnunin starfar með það að leiðarljósi að auka skilning á málefnum sem snúa að fólksflutningum. Stofnunin veitir aðstoð vegna þeirra auknu áskoranna sem fylgja fólksflutningum, styðja fólksflutninga í þágu efnahagslegrar þróunar, verja mannlega reisn og velferð farandfólks og fólks á flótta.

Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna, UNDP

Þróunaráætlun SÞ aðstoðar ríki við stuðlun sjálfbærrar þróunar. UNDP er nú með fjölda verkefna í gangi í þróunarlöndunum með aðstoð yfir 100 svæðisstofa.