Utanríkisráðherra lagði áherslu á varðstöðu um lýðræði, frelsi og mannréttindi er hún ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf á mánudaginn
Við upphaf 52. lotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna s.l. mánudag, ávarpaði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra mannréttindaráðið. Auk þess tók ráðherra þátt í mannúðarráðstefnu um Jemen og flutti ræðu fyrir hönd Norðurlanda á viðburði til stuðnings Úkraínu. Í stefnuræðu Íslands um alþjóðleg mannréttindamál fordæmdi hún harðlega innrás Rússlands í Úkraínu og minnti á skelfilegar afleiðingar stríðsins […]













