Ljósmyndasýningin ‘Child mothers’ opnuð í Smáralind
Í dag opnaði ljósmyndasýningin ‘Barnungar mæður’ eða ‘Child mothers’ í Smáralind á alþjóðlegum degi stúlkubarnsins. Utanríkisráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir opnaði sýninguna formlega ásamt Pernille Fenger, skrifstofustjóra norrænu skrifstofu UNFPA, Mannfjöldasjóðs SÞ og Völu Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóra Félags SÞ. Ungmenni úr 9. og 10. bekk Salaskóla voru viðstödd opnunina og kynntu sér sögurnar. […]













