Er friðurinn úti?
4. þáttur: Rödd Íslands á alþjóðavettvangi
Þessi 4. þáttur friðarhlaðsins snýst um rödd, rödd Íslands á alþjóðavetvangi.
Spurt er: Hefur Ísland rödd á alþjóðavettvangi? Getur Ísland haft áhrif í alþjóðakerfinu þegar kemur að því að sporna gegn ofbeldi og stuðla að friði á heimsvísu?
Hlaðvarpið er hluti af „Friðardögum í Reykjarvík 2020“ og er þessi þáttur í samstarfi við Utanríkisráðnuneytið og félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Umsjónarmaður þáttana er Margrét Marteinsdóttir, fjölmiðlakona. Í þáttunum er m.a. rætt við Rósu Guðrúnu Erlingsdóttur, formann hjá „Kynslóð jafnréttis“ um þátttöku Íslands í átaki UN Women.
Píu Hansson – Forstöðumann Höfða friðarseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, um stærstu áskoranirnar sem framundan eru í friðarmálum og möguleika smáríkja til áhrifa á alþjóðavettvangi.
Birnu Þórarinsdóttur – Framkvæmdastýru UNICEF á Íslandi og Stellu Samúelsdóttur – framkvæmdastýru UN Women á Íslandi um möguleika Íslands til að setja mál á dagskrá á alþjóðavísu þegar kemur að því að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gagnvart börnum.
Þá kemur Davíð Logi Sigurðsson frá Alþjóða- og Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins og fjallar um setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna,
Baldri Þórhallssyni – Prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands fjallar um það hvort lítil ríki eins og Ísland geti orðið leiðandi í mannréttindamálum.
Björn Bjarnason um mikilvægi norræns samstarf þegar kemur að friði.
Davíð svarar meðal annars þeirri spurningu: Hvað náðum við að gera á þessu eina og hálfa ári þar sem Ísland var með setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna?
,,Við lögðum upp með það þegar við vorum kjörin í mannréttindaráðið, við vissum að við yrðum stuttum tíma í ráðinu. Ríki sitja venjulega 3 ár en kjör okkar í ráðið kom þannig til að við förum inn á miðju kjörtímabili við vissum að þetta yrði stuttur tími”
Við vildum fara inn í ráðið og gera eitthvað ekki bara fara og sitja þar og taka þátt í atkvæðargreiðslum og flytja ræður og svo framvegis, heldur setja ákveðin mál á oddinn. Það eru nokkrir hlutir sem ég myndi vilja nefna í þeim efnum –
Í fyrsta lagi hverjir sitja i ráðinu? Utanríkisráðherra hefur talað nokkrum sinnum um það og gerði það áður en við vorum kosin inn í ráðið að það skipti máli hvaða ríki sem eiga sæti í mannréttindarráðinu séu að reyna að uppfylla kröfur um það að vera leiðandi i mannréttindarmálum. Að þau ríki sem sitja í mannréttindarráðinu séu allavega að reyna stuðla að bættum mannréttindum “
Hlaðvarpið er mjög áhugavert. Fyrir þá sem hafa áhuga á að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni er hægt að nálgast þáttinn hér: https://ams.hi.is/is/publication/43/









a úr því. Íran kjarnorkusamningurinn er samningur milli Írans og þeirra landa sem eru með neitunarvald í öryggisráðinu og Evrópusambandinu og snýst hann um kjarnorkuvopnaöryggi. Nýlega gengu Bandaríkinn út úr samningnum og umræðuefnið á þinginu var um það hvenig ætti að reyna að bæta það upp. Kúrdistan sem er á milli Írans, Sýrlands og Íraks vildi fá sjálfstæði frá þeim löndum meðal annars vegna ofsókna og öryggisráðið ræddi um það hvort það ætti að veita þeim sitt eigið land eða ekki.
mál þar og fræðast ítarlegra um hvernig ástandið er í öðrum löndum. Eins og til dæmis um stríð, ofsóknir, sjálfstæði, rétt til þess að læra sitt eigið tungumál og margt fleirra. Síðan finnst okkur báðum alltaf gaman að að fá að tjá hugmyndir okkar um hvað væri hægt að gera í ýmsum málum og svo að vinna saman með öðru fólki til þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu að því hvernig ætti að leysa vandann. Maður heyrði líka mismunandi skoðanir frá fólki sem er alltaf góður hlutur. Það var skemmtilegt að fá að kynnast nýju fólki sem kom víðs vegar að úr heiminum, sem maður hefði annars ekki kynnst ef það væri ekki fyrir model UN. Maður fékk að sjá og fræðast um það hvernig fundir innan sameinuðu þjóðanna fara fram og auk þess taka beinan þátt í fundunum. Okkur fannst mjög áhugavert að sjá hvernig stjórnmálafundir fara fram og sérstaklega í Sameinuðu þjóðunum þar sem öll ríkin koma saman til þess að ákveða hvað skuli vera gert í tilteknu máli. Model UN hvetur fólk til gagrýnnar hugsunar og hvetur mann til að velta fyrir sér ýmsum hlutum sem eru að gerast í hring um okkur.

Breiðholti og Kvennaskólanum í Reykjavík eru í fyrstu skólar sem taka þátt í skólaneti UNESCO á Íslandi. Viðburðurinn hófst á 